05.06.2012
Það er komin mynd á námskeiðin næsta haust fyrir þá sem eru að brjóta hugann um hvað væri sniðugt að gera. Sumir
vilja skrá sig strax að vori og tryggja sér þannig pláss á vinsælustu námskeiðin, en skráning hefst strax eftir
verslunarmannahelgi.
Það verður nýtt og spennandi fræðsluefni sem fylgir lífsstílnum næsta haust. Vaxtamótunarnámskeiðið Nýtt
útlit mun halda áfram og verða hópar að morgni og seinni partinn. Body Fit námskeið verður kl 6:10 á morgnana og mömmuCrossFit
námskeiðið vinsæla verður á sínum stað. Hægt verður að kaupa 8 vikna aðgang að vefjagigtar Gravitynámskeiðunum og
Gravity Extra fyrir þau sem eru 30 kg of þung eða meira verður í boði kl 16:30 þrisvar í viku.
Sjá nánar.
04.06.2012
Nú er komið að því að gera eitthvað sniðugt og skemmtilegt. Hlaupum til styrktar Olympíuhópi FRÍ. 2-7 geta skipað
boðhlaupssveit og hlaupið 1-2 eða fleiri 3 km hringi í Innbænum. Byrjum við Leikhúsið kl 17:30 þriðjudaginn 5. júní.
Frábær verðlaun og happdrætti. Tvær gerðir af sveitum þar sem karlar eru í meirihluta og svo þar sem konur eru í meirihluta.
Veitingastaðirnir Rub 23 og Silva gefa sigursveitunum út að borða og Bjarg gefur Hot Yoga tíma og pott og axlanudd á eftir. Bautinn, 1862 Nordic Bistro, Svefn
og Heilsa, Nettó, Kjarnafæði og fleiri gefa verðlaun og Vífilfell eins og oft áður kemur með svaladrykki fyrir keppendur.Ef þið náið
ekki að skrá ykkur í tíma inná hlaup.is er í lagi að mæta og skrá sig á staðnum.
01.06.2012
Síðasti Body Balance tíminn á laugardegi er á morgun. Abba fer út með tímann ef veðrið verður gott. Það verður
Body Balance á miðvikudögum kl 17:30 í allt sumar. Einstaklega vel samsettir tímar þar sem við hitum upp með Tai Chi æfingum og
sólarhyllingu úr Yoga. Síðan er farið í góðar Yogastöður sem styrkjja allan líkamann og kenna okkur að umgangast musterið
sem við búum í. Kvið og bakæfingar koma að mestu úr Pilates og svo er alltaf góð slökun í lokin.
31.05.2012
Afsláttarkortin til framhaldsskólanna hafa verið í sölu allan mánuðinn og verða áfram. Allir sem skrifuðu sig á listana og
verða ekki búnir að borga 10. júní fá reikning í heimabanka.
31.05.2012
Hlaupanámskeiðinu lauk í dag. En það er hugur í fólki og Sonja, Rannveig og Óli ætla að halda áfram með tíma
frá Bjargi á mánudögum og fimmtudögum kl 17:15 og svo er hugmynd um þriðja tímann í Kjarna, kemur í ljós hvenær.
Tímarnir verða opnir fyrir alla sem eiga kort á Bjargi svo nú er um að gera að skella sér út þegar tímum er að fækka hjá
okkur inni. Þeir sem ekki eiga kort geta keypt kreppukort á 5500kr og fengið þannig aðgang að hlaupahópnum og öllum öðrum tímum og
aðstöðu á Bjargi.
28.05.2012
Nýja vaxtamótunarnámskeiðið hefur alveg slegið í gegn. Síðasti tíminn hjá þeim sem eru að klára er á
þriðjudag og svo byrja tvö ný námskeið á miðvikudaginn. Abba verður með happdrætti í lokatímanum og kökusmakk og
svaladrykk.
28.05.2012
Föstudaginn 1. júní breytist opnunartíminn hjá okkur. Þann dag verður opið frá 6-14. Á laugardögum frá 9-13 og
lokað á sunnudögum. Á mánudögum og miðvikudögum verður opið frá 6-19:30 og á þriðjudögum og fimmtudögum
frá 8-14 og 16-19:30. Þetta byggjum við á reynslu síðustu ára. Það eru fáir að mæta um miðjan daginn og á
sunnudögum og snemma á þriðjudögum og fimmtudögum. Við bjóðum í staðinn frábær kjör á mánaðarkortum
út sumarið, 5500kr og þeir sem eiga kreppukort geta æft þegar það er opið, óháð tíma.
24.05.2012
Tryggvi var með útitíma í hádeginu í gær, æðislegt. Hádegishópurinn hér er sá hópur sem fær
oftast að vera úti. Dansinn á laugardögum kl 11 er líka oft á útipallinum. Sumarið er því komið og verður að
sjálfsögðu gott og gjöfult.
24.05.2012
Sumarið nálgast og sumarfríin taka við og ferðalög. Við mætum því með færri tímum seinni partinn en höldum inni
megninu af morguntímunum sem voru í vetur og hádegistíminn verður á sínum stað 3x í viku. Sumartaflan er enn í vinnslu
því sumir tímar eru að stækka aftur og því möguleiki að halda þeim inni í júní. Sumartaflan tekur við 4.
júní.
22.05.2012
Það eru endalausir frídagar um þessar mundir. Við verðum með lokað á Hvítasunnudag en á annan í hvítasunnu verður
tækjasalurinn opinn frá 10-13, engir tímar verða í boði.