29.01.2014
Þau sem vilja æfa t.d.kl. 16:30 geta fengið mjög fjölbreytta og skemmtik-lega tíma. Zumbu á mánudögum og fimmtudögum, spinning á
þriðjudögum og þrektíma á miðvikudögum. Fyrir þau sem komast ekki svona snemma er heita þrekið kl 17:30 á
mánudögum, Body Pump 18:30 á miðvikudögum og spinning 17:15 á föstudögum. Morgunhanar geta komið í þrektíma tvisvar í
viku kl. 6:15 og 8:15. Spinning og heitt þrek er líka í boði kl. 8:15. Frábært úrval og góðir, reynslumiklir kennarar.
28.01.2014
Abba vill gjarnan sjá fleiri í Hot yoga á morgnana kl. 9:15. Upplagt fyrir vaktavinnufólk að mæta þarna. Það er hægt að
kaupa 10 tíma kort í hot yoga og mæta bar einu sinni í viku t.d.
28.01.2014
Núna eru búnir tveir tímar í zumbunni og dansinn dunaði, ljósin blikkuðu, skvísurnar svitnuðu og gleðin var allsráðandi. Ef
einhver náði ekki fríum kynningartíma er allt í lagi að koma á fimmtudaginn og prufa frítt.
Salurinn er risastór og tekur hæglega 60 dansara.
22.01.2014
Gaman, gaman, Zumban er að byrja á morgun kl 16:30. Opinn tími fyrir alla sem vilja prufa og líka næsta mánudag.
21.01.2014
Óli setur æfingu dagsins á töfluna 2x í viku, 4 æfingar alls. Oftast er önnur meira þol en hin góðar styrktaræfingar.
Hann er í salnum á þriðjudögum og fimmtudögum oftast frá kl. 6 til kl 16. Alltaf til í að leiðbeina og það fylgir með
kortinu. Skemmtilegar og fjölbreyttar æfingar sem henta öllum.
16.01.2014
Það er yfirfullt á dekurnámskeiðið kl. 17:30 á þriðjudögum og fimmtudögum. Þokkalega fullt á Nýtt útlit en
hægt að bæta nokkrum við og einnig í dekri, dansi og djammi. Þetta er eðalblanda fyrir konur að dansa í sig gleðina, styrkja miðjuna og
allt hitt í heitu þrektímunum, og tengja svo sál og líkama í Body Balance og Hot yoga. Ef heita þrekið fer illa í einhverja er
möguleiki á venjulegum þrektímum kl. 16:30 á miðvikudögum, þar sem við notum Gravitybekkina góðu, hjólin, palla og fleira
skemmtilegt.
16.01.2014
Við bjóðum fólki sem hefur lítinn tíma eða heilsu til að æfa mörgum sinnum í viku þann kost að kaupa sig inní einn
tíma vikulega fram í miðjan maí. 16 vikur kosta 14.000 kr. og viðkomandi getur valið sér tíma, spinning, Hot yoga, heitt þrek eða
eitthvað annað. Mögulegt er að kaupa sig inní tíma 2x í viku fyrir 28.000 kr. Bjargþrekið á laugardagsmorgnum fylgir með en ekki
tækjasalur.
14.01.2014
Núna eru námskeiðin að byrja og mikið að gera í afgreiðslunni og þröngt á bílasæðunum. Þá er
það bara þolinmæðin og kannski að ganga á Bjarg ef þið eigið heima nálægt. Svo er líka frítt í
strætó. Dekurnámskeiðið byrjar í dag og það komu rúmlega 30 í heita tímann í gær, en hann er að hluta til
fyrir Nýtt útlit. Þau eru samt flest að byrja í dag og líka dekur, dans og djamm. Abba vigtar og mælir fyrir tímann sem er 16:30 og
eftir 17:30 tímann. Gott að fá tölurnar á blað og stefna að 10% léttingu á mislöngum tíma.
09.01.2014
Það er fullt á Dekurnámskeiðið hennar Öbbu. Við sjáum til eftir fyrstu vikuna hvort eitthvað losnar fyrir biðlistann. Enn er
pláss fyrir 10 manns á Nýtt útlit stig 2 og dekur, dans og djamm námskeiðið. Við skráum frekar langa biðlista og náum oft að
koma ansi mörgum inn af þeim.
Námskeiðin byrja eftir helgina og eru margar búnar að prufa tímana í þessari viku og klára harðsperrurnar, gott að vera laus við
þær. Við munum vigta og mæla alla sem það vilja og skrá niður til að taka þátt í áskoruninni. Hjá okkur
vinna allir sem ná markmiðunum, ekki bara einn sem fær verðlaun.
09.01.2014
Þetta námskeið er fyrir þær sem vilja dansa Zumbu, koma í Hot yoga, svitna vel í heita þrekinu hjá Öbbu og styrkja miðjuna og detta
svo inní einn og einn Body Balance tíma. Tækjasalurinn fylgir með, 15 vikur á aðeins 37.000 kr. Abba og Arna Benný kenna flesta tímana.