28.02.2013
Nýtt líf er kl 9:30 5x í viku, Nýr lífsstíll er 3x í viku kl 18:30 á mánud, og miðvikud. og kl 10:30 á
laugardögum. Seinni 8 vikurnar byrja 11. mars og er skráning byrjuð. Margar eru skráðar á 16 vikna námskeið en það er pláss
fyrir 15-20 í viðbót í hvorum hóp seinni 8 vikurnar.
28.02.2013
Það er pláss fyrir 6 manns í Gravity kl 16:30 á miðvikudögum. Við opnum þann tíma fyrir alla. Skráning vikulega,
byrjum að skrá á laugardagsmorgni fyrir opna Gravitytíma vikunnar.
28.02.2013
Nýtt mömmunámskeið byrjar næsta mánudag, 4. mars. Það stóð til að byrja 7. mars en það er það góð
skráning að þjálfararnir vilja byrja strax. Enn eru samt laus sæti fyrir þær sem vilja koma inn.
24.02.2013
Við höfum boðið uppá fría dansíma á laugardögum í mörg ár. Þeir sem hafa mætt í þessa tíma
hafa fengið að fara frítt í heitu pottana og alla aðstöðu. Nú er svo komið að þessir tímar verða fríir fyrir korthafa
á Bjargi en aðrir borga 1000kr fyrir hvern tíma sem er góður afsláttur af stökum tíma sem kostar 1900kr.
24.02.2013
Nýtt 6 vikna námskeið byrjaði sl fimmtudag. Heitur tími 2x í viku og Gravity 1x í viku. Enn er pláss á því
námkeiði kl 16:30, hámark 24. Alltaf er hægt að koma inn í námskeiðið sem er kl 9:30 en þar eru tímar í boði 5 daga
vikunnar. Fyrir þær sem vilja heita tíma þá eru þeir á þriðjudögum og fimmtudögum, þrektími á
mánudögum og miðvikudögum og Gravity á föstudögum.
19.02.2013
Abba verður með matreiðslukennslu á morgun miðvikudag kl 20 á neðri hæðinni. Þetta er hugsað fyrir alla sem eru á
námskeiðum. Hún vill helst fá 40 manns og það er pláss fyrir um 8 manns aukalega, skrifið ykkur á listana á Bjargi. Verð er
700kr fyrir þau sem eru á námskeiðum, 1000kr fyrir hina. Fullt af hollu og spennandi smakki, ekki borða of mikið áður en þið komið.
15.02.2013
Allur dans fellur niður í dag og á morgun vegna óviðráðanlegra orsaka. Bendum spinning kl 16:30 í dag í staðinn.
Dansdífurnar eru líka velkomnar í lífsstílstímann á morgunn, laugardag kl 10:30. Tækjasalurinn er líka opinn fyrir þau
sem vilja puða þar.
14.02.2013
Annan hvern fimmtudag kl 18:30 er byrjendatími í Hot Yoga. Abba kennir í dag og fer mjög rólega og tekur engar erfiðar stöður. Hentar vel
fyrir þau sem eru með vefjagigt, einhver mein, eru í þyngri kantinum eða finnst venjulegu Hot Yoga tímarnir of erfiðir. Hot Yoga er krefjandi en munið
að fara að ykkar mörkum, hver og einn gerir eins vel og hægt er. Það er allt í lagi að stoppa stundum, leggjast og jafna sig.
14.02.2013
Það er troðið í þessa tvo Body Balance tíma sem við erum með í hverri viku. Byðjum fólk um að koma snemma á
laugardögum til að tryggja sér plássið. Það er erfitt að finna pláss fyrir þriðja tímann en við erum að leita að
plássi sem hentar. Einnig er vel fullt í Hot Yoga tímana 3 sem eru seinni partinn og gott að koma 5 mín fyrir tímann til að vera öruggur
með dýnu.
11.02.2013
Bendum á að kennslan á prógrömmin í tækjasalnum hættir eftir 14. febrúar. Notfærið ykkur kennsluna þangað til,
hún er þrisvar í viku. Eftir þann tíma er hægt að semja við Öbbu og Óla um kennslu í salnum. Kennslan kostar ekkert.