29.12.2015
Áramótapartý Bjargs Miðvikudaginn 30.des kl 17:30-19 verður stuð á Bjargi - tíminn er opinn öllum sem vilja koma.
27.12.2015
Því miður getur Anna ekki kennt Body Pump næsta þriðjudag og tíminn fellur því niður. Þrektíminn kl.6:10 um morguninn fellur líka niður.
26.12.2015
Það verður hjólaspinning kl 11 á morgun sunnudag. Um að gera að koma og taka vel á því :)
24.12.2015
Drög að nýrri tímatöflu fyrir 2016 eru komin inn undir flipanum tímatafla.
20.12.2015
Já, eins og flestir vita þá eru spennandi tímar framundan hér á Bjargi. Nýir eigendur taka við um áramót. Frábært fólk sem er fullt af orku og nýjum hugmyndum. Abba og Óli verða í Svíþjóð um jólin en koma tilbaka fyrir áramótin. Það verður kveðjutími á miðvikudeginum og í leiðinni fögnuður yfir nýjum eigendum.
17.12.2015
Það verða einhverjar breytingar á tímatöflu og opnunartíma um jól og áramót. Skoðið vel tímatöfluna, hún verður uppfærð og henni má treysta.
11.12.2015
Nú eru öll námskeið búin nema Nýr lífsstíll, þar eru 3 tímar eftir. Bendum öllum sem voru að klára önnur námskeið og vilja halda áfram að mæta í lífsstílstímana. Við ætlum að halda inni Gravity kl. 16:30 á fimmtudögum. Svo bjóðum við öllum sem voru að klára námskeið að æfa frítt út árið.
07.12.2015
Vegna ferlegrar veðurspár þá ætlum við að loka kl 18 í dag. Hot yoga, spinning og lífsstíls tíminn falla niður. Dekurtíminn kl 16:30 er inní og bendum við lífsstílsgellunum á að mæta þar ef þær geta.
05.12.2015
Tækjasalurinn verður opinn í dag til kl. 14. Ólatíminn verður kl. 9 en aðrir tímar falla niður vegna veðurs.
27.11.2015
Besta jólagjöfin fyrir marga er líkamsræktarkort. Hvernig væri að gefa unglingnum mánaðarkort í tækjasalinn fyrir 8.600 kr. Sumir eru flottir á því og kaupa árskort og gefa sínum nánustu.