27.02.2014
Óli ætlar að setja upp tjald og vera með dvd spinning á morgun kl 17:15. Hann mun velja flott myndbönd við enn flottari tónlist og þá er
hægt að sjá hver er hljómsveitin á bakvið lagið. Opið fyrir alla sem vilja byrja helgina á skemmtilegan hátt.
24.02.2014
Nú er tækifærið, áskorun í mars, 10 tímar vikulega og kostar aðeins 10.000 kr. mánuðurinn. Núna ætla kennararnir að
skipuleggja allan mánuðinn og ákveða hvað verður í hverjum tíma og senda á Þátttakendur. Byrjendarímar verða í
boði fyrstu tvær vikurnar, líka krefjandi power yoga og flæðandi vinyasa tímar í bland við okkar góðu Hot yoga tíma. Einn
tími fer í öndun og hugleyðslu, annar í þægilegar teygjur og langa slökun og einhverjir verða heppnir og fá happdrættisvinninga.
Skráning á bjarg@bjarg.is eða í afgreiðslunni á Bjargi.
17.02.2014
Það er mjög einfalt og gott þegar maður byrjar að æfa að setjast á hjólið og hjóla. Frábær
þolþjálfun fyrir alla, slökun fyrir hugann eftir vinnu eða skóla og mikil brennsla fyrir þau sem vilja léttast. 5 vikna námskeið hefst
3. mars og kostar 12.000 kr. Möguleiki á þremur spinningtímum og Bjargþrekið á laugardögum fylgir með. Vigtun og mælingar ásamt
fræðslu fyrir þau sem það vilja.
10.02.2014
Við skoruðum á ykkur á nýju ári að léttast um 10% á 5, 10 eða 15 vikum. Núna er vigtun í gnagi þessa viku sem
létu vigta sig 6.-13. janúar. Einn er allavega kominn með 10% léttingu á 5 vikum, rúmlega 11 kíló og geri aðrir betur. Hann vann
sér inn 6 mánaða þrekkort sem má nota þegar hentar.
06.02.2014
Hægt er að kaupa 10 tíma kort í flesta tíma á Bjargi. T.d. eru 10 tíma kortin í Hot yoga mjög vinsæl og kosta bara 10.000
kr. Möguleiki er að kaupa 10 tíma í Body Balamce pg Zumbu. Tryggvi er líka með 10 tíma kort í sína tíma. 10 tíma
kortin er góð til að prufa hina og þessa tíma áður er fólk ákveður að kaupa t.d. þrekkort heilt ár.
02.02.2014
Einn þáttakenda í Biggest Loser Ísland æfir hjá okkur á Bjargi. Hrönn Harðardóttir mætir daglega og æfir vel undir
handleiðslu Óla í tækjasalnum og svo mætir hún líka í ýmsa tíma og hefur þjálfunina fjölbreytta.
Úrslitin ráðast ekki fyrr en í apríl þannig að við höldum með okkar konu. Áfram Hrönn!!!