31.12.2012
Nú mæta allir í gamlárshlaup UFA sem byrjar hér við Bjarg kl 10 og 11. Gangan hefst kl 10 og hlaupið kl 11, 5 og 10 km í góða
veðrinu. Súpa frá Rub 23 á eftir og brauð frá Bakaríinu við Brúna.
27.12.2012
Hot Yoga verður kl 16:30 í dag og Zumban kl 17:30. Spinningtíminn er á sínum stað kl 17:15. Nú mæta allir spenntir að hreyfa sig eftir
rólegheitin yfir jóladagana og Abba, Eva og Anna lofa dúndurtímum.
23.12.2012
Óskum öllum viðskiptavinum Bjargs og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
20.12.2012
Helstu niðurstöður könnunar sem við gerðum meðal viðskiptavina eru komnar uppá töflu á Bjargi. Takk fyrir góða
þátttöku og jákvæða umsögn. Mest var kvartað undan tónlist í tækjasal, þrengslum á teygjusvæði og
hópeinkaþjálfun. Erfitt er að gera öllum til hæfis í tónlist og einfaldast að koma bara með ykkar uppáhalds og hafa hana í
eyrunum. Allir sem eru að gera lóða og boltaæfingar eiga að fara út af teygjusvæðinu og framkvæma æfingarnar á gráu eða
brúnu mottunum. Einkaþjálfararnir þurfa svo að passa að hóparnir þeirra taki ekki upp stóran part að tækjunum í of langan
tíma.
17.12.2012
Það hefur lítil sem engin notkun verið á gæslunni þannig að hún er komin í jólafrí. Herbergið er opið fyrir
þá krakka sem eru nógu stórir til að vera þar ein.
17.12.2012
Hvað segið þið um að mæta í heitan tíma (25-30 stig) tvisvar í viku og Gravity einu sinni kl 6:10? Spennandi námskeið sem Abba hefur
verið með kl 9:30 og 16:30 og virka vel. Komum brennslunni af stað og gerum góðar vaxtamótandi og kjarnastyrkjandi æfingar. Heitt á
mánudögum og miðvikudögum og Gravity á föstudögum.
17.12.2012
Allt komið á hreint með hvaða tímar verða í þessari viku, opnu yfir jól og áramót og annað.
11.12.2012
Body Pump tíminn á fimmtudogum er kominn í frí tar til á naesta ári. Tímataflan í jnúar verdur eitthvad breytt en bara meira
spennndi.
07.12.2012
Það eru fá börn að mæta í gæslu þessa dagana. Inga Lóa mætir á mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum kl 9:15 og sinnir gæslunni ef einhver börn mæta í næstu viku. Við sjáum svo til með framhaldið. Gæslan á
föstudögum seinni partinn er hætt.
04.12.2012
Því miður verður engin Zumbatími næsta fimmtudag.