29.08.2012
Les Mills kennarar Bjargs verða fjarverandi um næstu helgi og því fellur Zumban niður á laugardag. Það er workshop í Reykjavík og Eva
er að kenna Sh´bam og Abba Body Vive. Body Step á mánudag fellur niður og etv. á miðvikudag líka vegna fjarveru kennara. En svo ætti
allt að fara að rúlla vel. Nýir kennarar eru að koma meira inn. Guðríður, Andrea og Bryndís byrjuðu í fyrra og hafa komið
mjög sterkar inn og munu kenna meira á komandi vetri. Elvar Sævars og Anný verða að mestu í fríi og Jóna kennir minna.
26.08.2012
Það var mikil ánægja með nýju prógrömmin hans Óla í salnum og einkakennsluna og allar leiðbeiningarnar sem
einkaþjálfararnir Guðríður og Andrea voru með í byrjun árs. Þær verða til taks í salnum 3x í viku í september
og kenna á prógrömmin. Mánudagar kl 16:30-18:00, miðvikudagar kl 10:30-12:00 og föstudagar kl 8:00-10:00. Ef tíminn hentar ekki er hægt
að panta tíma í afgreiðslu eða tala við Öbbu eða Óla.
26.08.2012
Einstakir þjálfarar eru með unglinganámskeiðin á Bjargi. Tryggvi og Birna
26.08.2012
Það er stór dagur á morgun. Lífsstílsnámskeiðin eru að byrja, stemming og stuð. Það eru mjög margir í
hópnum kl 18:30 og við komumst örugglega ekki yfir það að mæla alla í fyrsta tíma. Því er gott ef einhverjar komast fyrir
tímann eða jafnvel í fyrramálið. Morgunhópurinn er töluvert minni og nóg pláss þar ennþá.
Gravitynámskeiðin tvö eru líka að byrja á morgun. Þar er fullt í báða hópa og sjúkraþjálfararnir
Þóra og Ósk ásamt einkaþjálfurunum Guðríði og Andreu sjá um kennsluna. Guðríður og Andrea koma líka
inní kennsluna hjá lífsstílshópunum í ár með Öbbu, Hólmfríði, Önnu og Birgittu.
23.08.2012
Við erum alltaf að færa út kvíarnar og Óli var að semja við Sporthúsið í Kópavogi um samvinnu. þannig að ef okkar
fólk er fyrir sunnan getur það valið um að æfa í Sporthúsinu, Hress í Hafnarfirði, Árbæjarþreki eða Veggsporti í
Reykjavík. Einnig gildir kortið í Lífsstíl í Keflavík og Vestmannaeyjum, sundlaugina á Dalvík, ræktina í
Ólafsfirði, Húsavík og á Króknum.
22.08.2012
Gravity námskeiðin tvö kl 17:30 og 18:30 voru fljót að fyllast eins og Nýtt útlit kl 16:30. Laust er á önnur námskeið en
lífsstíllinn kl 18:30 er orðin nokkuð fjölmennur. Auglýsningin kom í dag um Body Fit, Gravity Extra og mömmuþrekið og skráningin
tók mikinn kipp og eru örfá sæti laus á t.d. Gravity extra námskeiðinu. Þau sem borga námskeiðin strax geta byrjað að
æfa núna og fengið allar mælingar strax sem er mikill plús.
22.08.2012
Við höfum boðið framhaldsskólanemum og kennurum 50% afslátt af árskorti ef skólinn nær að safna ákveðnum fjölda, 100manns.
Þessi söfnun stendur yfir í apríl og kortin eru seld í maí. Nýnemar missa af þessu tilboði og því bjóðum við
þeim sama díl að hausti ef þeirra skóli hefur náð 100 manna tölunni í apríl. Kortið kostar því 33000kr (eins og var
í apríl). Hægt að kaupa í afgreiðslu á Bjargi en þarf að sýna skólakort. Kortið gildir frá 1. júní
2012 til 1. júní 2013.
21.08.2012
Nú verður hægt að koma á Body Fit námskeið kl 6:10 á morgnana. það er einstaklega notalegt að byrja daginn inní volgum sal og
gera góðar æfingar fyrir djúpu kvið og bakvöðvana, læri og rass. Þessir tímar eru góðir fyrir alla því ef
bakið er ekki í lagi þá er lífið ómögulegt. Hitinn í salnum mýkir liðamót og vöðva og allar æfingarnar
skila því meiri árangri. Þægileg tónlist, engin læti og allir berfættir. Notum líka foamrúllurnar góðu með
boltunum og léttu lóðunum.
21.08.2012
Við ætlum að halda áfram að sinna þeim sem eru í yfirþyngd og Gravity Extra er fyrir þann hóp. Gravity 2x í viku og
þoltími, inni eða úti einu sinni í viku. Aðahald og fræðsla fyrir þá sem vilja. Það er gott að hefja sína
líkamsrækt á Gravity námskeiði. Bekkurinn var hannaður í upphafi sem endurhæfingabekkur og er notaður sem slíkur og er
því ótrúlega góður fyrir alla, bakveika, hnéslæma og of þunga. Byrjum 11. september og tímarnir eru á eðaltím,
kl 16:30 á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum.
20.08.2012
Það var brúðkaupsveisla í stóra salnum um helgina. Ekki var hægt að sjá að þetta væri líkamsræktarsalur
þegar búið var að rusla öllum lóðum, dýnum, pöllum....út og setja inn borð og stóla.