31.05.2014
Þriggja vikna námskeið byrjar 11. júní og endar 30. júní. Tímar þrisvar í viku kl. 16:30. Heitur þrektími
á mánudögum, Gravity á miðvikudögum og föstudögum. Möguleiki á aukatímum hina dagana eða kennslu í tækjasal.
Gravity eru styrktartímar í sérhönnuðum bekkjum þar sem unnið er með eigin þunga. Tímarnir henta öllum, fólki í
toppformi og byrjendum því hver og einn styllir álagið við hæfi. Þrektíminn á mánudögum er í Hot yoga salnum, verulega
vaxtamótandi og skemmtilegir tímar. Abba og Óli sjá um kennsluna.
27.05.2014
Það verður lokað á Bjargi fimmtudaginn 29. maí.
27.05.2014
Vekjum athygli á því að Body Pumpið er komið yfir á þriðjudagana og er kl. 17:30. Erum með flotta tímaröð kl. 17:30:
spinning, Body Pump, súperkeyrslu, Hot yoga og spinning/þrek. Tvisvar í viku er svo útitími hjá Óla kl. 17:15. Vonumst til að sjá sem
flesta í þessum tímum, enn er hægt að prófa allt sem þið viljið út maímánuð.
26.05.2014
Hádegisþrekið og Zumban voru úti í dag. Opnuðum tækjasalinn og settum hjól og róðrarvélar út.
22.05.2014
Síðasti föstudagsspinningtíminn er á morgun. Opinn fyrir alla sem vilja prufa, sviti, puð og stuð á föstudegi. Tíminn er kl.
17:15.
22.05.2014
Við erum í sumarskapi og það er fátt skemmtilegara en að dansa á sumrin. Arna Benný er frábær danskennari og ekki verra að
hún er íþróttafræðingur. Hún geislar af dansgleði og Zumbadansarnir eru skemmtilegir við enn skemmtilegri tónlist. Allr geta
því notfært sér að dansa á Bjargi í sumar og ef veðrið er gott þá færum við dansinn út á pallinn.
Tímarnir eru á mánudögum kl. 16:30.
21.05.2014
Við framlengjum tilboðið á þrekkortinu til 3. júní. Árskort á 86.000 kr. og þrír mánuðir í
kaupbæti.
20.05.2014
Sumartaflan tekur við 26. maí með fjölbreyttum og skemmtilegum tímum. Þá breytist opnunartíminn líka. Á mánudögum og
miðvikudögum verður opið frá 6 til 21. Á þriðjudögum og fimmtudögum frá 6 til 23, 6 til 19 á föstudögum, 9 til 16
á laugardögum og 10 til 14 á sunnudögum. Ef notkunin á kvöldin verður léleg þá styttum við opnunartímann. Einnig ef
einhverjir tímar eru illa sóttir þá leggjum við þá niður.
16.05.2014
Tryggvi er með Bjargþrekið í fyrramálið og hann lætur fólkið örugglega taka vel á því. Abba er með Body Balance,
alltaf jafnvinsæll tími, öflug blanda af yoga og Pilates við æðislega tónlist. Anna lætur alla í FIMM/TVEIR hópinum
örugglega finna fyrir því á þrekæfingu á meðan Abba verður með meistaraflokkinn í handbolta í Hot yoga.
Opinn Hot yoga tími verður svo á sunnudaginn, 60 mínútna tími kl. 11, Abba kennir.
Óli er nýbúin að þrífa útigufuna, eimgufa af bestu gerð.
Sigrún býr síðan til bestu smothie drykkina.
13.05.2014
Núna eru 3 heitir þrektímar vikulega og einn volgur. Annan hvern miðvikudagsmorgun kl. 8:15 er heitur þrektími hjá Öbbu og sá fyrsti er
á morgun. Opinn tími fyrir alla sem eru með þrekkort og aðra sem vilja prufa frábæra og öðruvísi tíma. Einn tíminn
er á mánudögum kl. 17:30, annar á þriðjudögum kl. 16:30 og volgi tíminn er á fimmtudögum kl. 16:30. Þetta eru
vaxtamótandi, styrkjandi og liðkandi tímar.