31.01.2013
Við gáfum nokkrum tímum sem eru ekki vel sóttir séns út janúar. 3 tímar á fimmtudögum eru á útleið.
Tökum einn fimmtudag í viðbót og svo hætta þessir tímar: Spinning/þrek kl 6:10, Body Fit kl 8:15 og CXWORX kl 18:30. Við munum
líklega setja inn CXWORX 30 mínútna core tíma kl 6:20 á þriðjudagsmorgnum.
31.01.2013
Það á að fara að taka upp sjónvarðsauglýsingu fyrir Bjarg á sunnudaginn. Okkur vantar sjálfboðaliða til að vera í
tímum eins og Hot Yoga, Boltatíma, Body Pumpi og í tækjasal. Zumban verður tekin upp síðar. Þetta mun taka 3-4 klst og byrjar kl 10.
Hægt að koma inní kl 12 t.d. eða fara eftir 1-2 klst. Við bjóðum þeim sem vilja leggja þetta á sig mánaðarkort sem má
ráðstafa að vild. T.d. gefa í afmælisgjöf eða eitthvað. Elvar myndatökumaður byður fólk um að vera ekki alveg
svartklætt, ok með buxur en helst í lituðum bolum. Þetta er bara skemmtilegt tækifæri, sjáumst kl 10.
30.01.2013
Sh´bam tíminn á föstudag fellur niður. Það verður gestakennari í Evudansi á laugardag kl 12:00. Inga danskennari frá
Dalvík mætir og heldur uppi fjörinum í fjarveru Evu.
28.01.2013
Hóffa er veðurteppt í Reykjavík og því fellur Body Step tíminn niður í dag. Hún mætir svo brjáluð eftir viku
í þennan frábæra pallatíma. Bendum Seppurum á spinning kl 17:15 og Body Fit kl 17:30 í staðinn.
27.01.2013
Hvað er betra kl 6 á morgnana en að skella sér á spinninghjólið á Bjargi í rökkrinu, hamast þar í 45 mínútur og
taka svo vel á kviðvöðvunum á eftir í 10 mínútur. Óli verður klár fyrir þetta í fyrramálið kl
6:10. Adda Þóra verður niðri í hitanum með heitan þrek og boltatíma á námskeiðinu Nýtt útlit, geysi vinsæl
námskeið og ansi margir eru farnir að ánetjast hitanum í kjallaranum.
24.01.2013
Það er mikið hringt til að athuga hvort hægt sé að koma inná námskeið. Það er fullt á Nýtt útlit kl 16:30 og
6:10, einnig Gravity vefjagigt kl 17:30. Tvö pláss eru laus í Gravity Extra kl 16:30 sem er fyrir þau sem eru 30 kg of þung eða meira. 3 laus
pláss eru í Gravity vefjagigt kl 18:30. Mömmuþrekið byrjaði á mánudag og þar er nóg pláss, 6 vikna námskeið.
Einnig er hægt að komast að í nýjum lífsstíl kl 18:30 og nýju lífi kl 9:30, 8 eða 16 vikna námskeið. Líka
möguleiki að vera eitthvað styttra. Tryggvi og Birna eru byrjuð með unglinganámskeið og eina námskeiðið sem ekki er byrjað er Grit.
Tækifæri fyrir þau sem eru í þokkalegu formi að taka þjálfunina lengra.
20.01.2013
Ólatíminn er alltaf jafnvinsæll hjá þeim sem vilja taka verulega á því. Skemmtilegir og ögrandi þrektímar á
laugardagsmorgnum , smoothie og pottur og spjall á eftir. Sterkur kjarni mætir alltaf í Body Balance og voru 27 mættir í gær. Einstök stemming
og þar er heiti potturinn fastur punktur á eftir. Kl 12 á laugardögum fyllist síðan stóri salurinn, 50 konur og stelpur, diskóljós,
sviti og stemming hjá Evu Reykjalín í dansi. Við sjáum ný andlit á hverjum einasta laugardegi enda er frítt í þessa tíma
og hefur verið í ein 5 ár eða meira.
17.01.2013
Anna er að kenna troðfullan hádegistíma í Body Pumpi núna. Allir tímar eru að fyllast og aðsóknin í tækjasalinn er
mikil. Við bendum á nýjan tíma kl 18:30 á fimmtudögum, 30 mínútna core, CXWORX. Ótrúlega góðir tímar
fyrir kjarna líkamans. Frábærir fyrir alla, íþróttafólk sem vill gera betur í sinni íþrótt, skrifstofumanninn sem
þarf að geta setið við tölvuna allan daginn, bílstjórann sem þarf að geta setið í bílnum allan daginn, verslunarfólk sem er
á stjáklinu allan daginn. Ef miðjan er sterk þá er lífið auðvelt.
15.01.2013
Við ætlum að bjóða uppá aukatíma í Hot Yoga, teygjum og slökun í heitum sal annan hvern fimmtudag kl 18:30 og annan hvern föstudag kl
16:30 fyrir þau sem eru á lífsstílsnámskeiði, Gravity vefjagigt og Gravity extra. Fyrsti tíminn verður næsta fimmtudag kl 18:30.
Rólegra og einfaldara yoga, meiri teygjur og slökun í restina. Tökum svo tíma með foamrúllum og etv litlum boltum og enn meiri teygjum í volgum
sal. Ekki alltaf yoga.
14.01.2013
Viltu komast í svaka form og æfa með Tryggva og Önnu 2x í viku kl 6:10? Grit eru nýir tímar frá Les Mills og kannski þeirra svar við
CrossFit. 30-45 mínútna tímar, stuttir, snarpir og krefjandi. 6 vikna námskeið byrjar þriðjudaginn 22. janúar og hópurinn
verður lítill því þetta er einstaklingsmiðuð þjálfun. Þetta er ekki námskeið fyrir byrjendur. Skráning er hafin,
fyrstir koma, fyrstir fá.