10.01.2013
Berglind Rafnsdóttir byrjar í næstu viku að kenna línudans hér í kjallaranum. Hún verður með framhaldshópinn á
þriðjudögum kl 20 og byrjendur á miðvikudögum kl 20. Hver tími kostar 600kr. Skemmtilegir dansar við flotta tónlist. Frítt í
fyrstu tvo tímana.
10.01.2013
16 .30 námskeiðin: Gravity extra og Nýtt útlit eru að byrja í dag. Vefjagigtargravity hóparnir tveir byrjuðu í gær og
lífsstíll og Nýtt útlit 6:10 og Nýtt líf 9:30 byrja þann 14. Gravity fyrir 60 ára og eldri er byrjað og unglingarnir fara af stað
14. janúar. Alls eru þetta 10 hópar og því mikið um að vera. Gott er að mæta daginn áður t.d. og borga og jafnvel fara
í mælingar (lífsstíll) um helgina.
09.01.2013
Hólmfríður og Aðalbjörg eru með reyndustu Body Balance kennurum landsins. Í dag kl 17:30 ætla þær að frumflytja nýjan Balance
frá Les Mills númer 59. Body Balance tímarnir eru skemmtileg blanda af góðum jóga og pilatesæfingum sem eru framkvæmdar í
flæði við einstaka tónlist. Í upphafi tímans fá allir að kynnast Tai Chi, einföld upphitun þar sem öndunin hjápar við
að kyrra huga og tilfinningar.
07.01.2013
Frábær námskeið hjá Birnu og Tryggva. Skráning stendur yfir og þau byrja 14. janúar.
07.01.2013
Fullt er á bæði vefjagigtar Gravity námskeiðin. Einnig er fullt á Nýtt útlit kl 16:30 og 3 laus pláss á Gravity Extra.
Nóg pláss er enn á Lífsstíl og Nýju útliti kl 6:10 og 9:30.
07.01.2013
Í síðustu auglýsingu í N4 dagskránni kemur fram að við séum að skrá í CrossFit og 6x6x6 og fleiri námskeið sem eru
ekki á dagskrá. CrossFit er komið í frí hjá okkur en Grit kemur í staðinn, sem fyrst eftir miðjan janúar. 6x6x6 er
námskeið fyrir konur og karla sem geta æft 6x í viku í 6 vikur og 6 kg hverfa. Við höfum ekki pláss fyrir þetta námskeið eins og
er en það gæti farið af stað í febrúar. Bendum á Nýtt útlit í staðinn og Grit kl 6:10 á morgnana.
05.01.2013
Við byrjum á fullu á mánudaginn næsta. Fullt af spennandi tímum og barnagæslan fer á fullt. Við höfum þétt
tímatöfluna og farið eftir óskum ykkar við ákveðnar breytingar. Töluvert var beðið um lengri og fleiri spinningtíma kl 6:10 á
morgnana og því ætlar Óli að hjóla meira á mánudagsmorgnum og gera svo góðar æfingar fyrir miðjuna á eftir. Fleiri
þrektímar var ein óskin og við erum með 8 opna þrektíma á viku og Óli og Elvar kenna á móti Hóffu og Bryndísi
á þriðjudögum og fimmtudögum sem ætti að virka hvetjandi fyrir karlana að mæta.
03.01.2013
Tryggvi og Anna fóru á mjög spennandi kennaranámskeið í nóvember hjá Les Mills. Nýtt kerfi sem heitir Grit og er fyrir fólk
í góðu formi sem vill fara lengra. Þau munu verða með námskeið kl 6:10 á morgnana á þriðjudögum og fimmtudögum eftir
miðjan janúar. Svakalega spennandi, skemmtilegt og öflugt kerfi.
03.01.2013
Ósk Jórunn hefur boðið uppá Gravitytíma fyrir 60 ára og eldri núna í líklega 2 ár. Tímarnir eru á
mánudags og fimmtudagsmorgnum og byrja núna á mánudaginn kl 10:30
02.01.2013
Óskum öllum gleðilegs árs með þakklæti fyrir gott líkamsræktarár. Við stefnum að skemmtilegu ári og vitum að 2013
verður einstakt fyrir fögur fyrirheit. Byrjum samt rólega en setjum allt á fullt að loknum jólum 7. janúar. Skoðið tímatöfluna
vel því einhverjir tímar falla niður fram yfir næstu helgi.