05.01.2013
Við byrjum á fullu á mánudaginn næsta. Fullt af spennandi tímum og barnagæslan fer á fullt. Við höfum þétt
tímatöfluna og farið eftir óskum ykkar við ákveðnar breytingar. Töluvert var beðið um lengri og fleiri spinningtíma kl 6:10 á
morgnana og því ætlar Óli að hjóla meira á mánudagsmorgnum og gera svo góðar æfingar fyrir miðjuna á eftir. Fleiri
þrektímar var ein óskin og við erum með 8 opna þrektíma á viku og Óli og Elvar kenna á móti Hóffu og Bryndísi
á þriðjudögum og fimmtudögum sem ætti að virka hvetjandi fyrir karlana að mæta.