Fréttir

Matreiðslukennsla

Abba verður með matreiðslukennslu fimmtudaginn 8. október kl. 20.  Hún auglýsti þetta fyrst kl. 18:45 en það er einn hópur sem er þá í tíma og ekki búin fyrr en 19:30.  Kennslan er fyrst og fremst fyrir alla sem eru á námskeiðum á Bjargi.  Lífsstíl, Gravity, Dekurnámskeiði, Gravity/Bolta og Nýju útliti.  Aðrir sem vilja koma borga 1000kr.  Mest allt nýjar uppskriftir, einfaldur og ódýr matur.  Fullt af smakki og eitthvað sætt í lokin.  Kennslan fer fram í eldhúsinu í kjallaranum.

Frítt í Hot yoga

Við eigum 15 ára afmæli í október og ætlum að halda vel uppá það. Eitt er að bjóða frítt Hot yoga á mánudögum.  Það er nóg pláss,  frábærir kennarar, heitur og góður salur og heitur pottur og gufubað í boði eftir tímann. 

Frítt fyrir alla sem eru í krabbameinsmeðferð í október.

Október er bleikur mánuður og hefur helgast þeim sem eru í krabbameinsmeðferð.  Við viljum leggja okkar að mörkum og gefum öllum sem eru á þeims stað í lífinu frítt í október.  Hvetjum fólk til að prufa tíma, tækjasal, heita potta og gufubað.  Ef fólki líkar vel getur það haldið áfram án þess að borga krónu meðan á meðferð stendur. Abba er t.d. að kenna Hot Fit á þriðjudögum og fimmtudögum kl 8:15.  Bendum líka á Gravitytímana á þriðjudögum og föstudögum kl. 9:30.

Gravity

Það eru 3 opnir Gravitytímar í töflunni.  Einstök leikfimi sem hentar öllum.  Hvetjum byrjendur sem lengra komna að prufa þessa tíma og sannfærast.  Opnu tímarnir eru á þriðjudögum og föstudögum kl. 9:30 og 16:30 á miðvikudögum.

Sterkur/Sterkari

Það er fullt á námskeiðið Sterkur/Sterkari hjá Tryggva sem byrjar á mánudag. Spennandi nýjung þar sem Tryggvi kennir hópnum réttu tökin við lyftingar.  Við skráum á biðlista um helgina.

Hot Fit og heitur Body Balance til skiptis.

Við höfum kennt Hot Fit og Hot yoga til skiptis á fimmtudagsmorgun og gengið vel. Því höfum við ákveðið að kenna Hot Fit og Hot Body Balance til skiptis á miðvikudögum kl. 17:30. Kennslan verður í heita salnum og Rannveig og Hóffa kenna til skiptis.

Spinningáskorun í mánuð.

Spinningáskorun Bjargi hefst í dag. Þar erum við að hvetja fólk til að prufa spinning og mæta í nokkra tíma vikulega og finna áhrifin. Tilboð verður á mánaðar þrekkortum meðan á áskorun stendur, 10.000 kr. Það eina sem þarf að gera er að skrifa nafn sitt á miða í hvert sinn sem mætt er í spinning og setja í kassa inní salnum. Þeir Sem mæta oft eiga því meiri möguleika á að vinna verðlaunin sem verða dregin út um miðjan næsta mánuð. 6 mánaða þrekkort er í verðlaun,  verðmæti um 56.000 kr.

Fleiri opnir Gravity tímar.

Við erum með Gravitynámskeið kl. 9:30 á þriðjudögum og föstudögum.  Það er ekki fullt á námskeiðinu og því pláss fyrir fleiri. Við ætlum því að opna þessa tíma fyrir alla sem eiga þrekkort eða eru á öðrum námskeiðum.

Gravitynámskeiðin og Nýtt útlit byrja þriðjudaginn 8. september

Þrjú Gravitynámskeið byrja þriðjudaginn 8.sept. Eitt kl.9:30, annað kl.16:30 og það síðasta kl. 18:30. Nýtt útlit í heita salnum byrjar líka kl. 16:30. Á þessum námskeiðum eru um 100 manns og vonandi allir spenntir að mæta, við erum tilbúin að taka vel á móti hópnum. 

Námskeiðin að byrja í næstu viku.

Flest námskeiðin byrja í næstu viku.  Við munum hringja í biðlistana um helgina og flestir munu komast inn en fullt er á Dekurnámskeiðið og Nýtt útlit.  Tvö pláss eru laus á Gravitynámskeiðinu kl 16:30 og nóg pláss kl 9:30.  Við höfum pláss fyrir fleiri á Lífsstílsnámskeiðinu sem fimmtudaginn 3. sept. Þau sem skrá sig þar hafa aðgang að öllum öðrum lokuðum námskeiðum.  Lífsstíllinn klárast um miðjan desember og fá allir sem klára námskeiðið að æfa frítt út árið.