13.04.2015
Síðasti Body Balance tíminn fram á haust verður á miðvikudaginn. Því miður hefur aðsóknin dregist saman í þessa
góðu tíma. Hot yoga tíminn á miðvikudag er líka sá síðasti í bili og heiti rúllutíminn í dag.
05.04.2015
Jæja, Óli er byrjaður á páska playlista fyrir spinningtíma kl.10:30 á annan í páskum. Gott að koma og bræða af sér
páskalambið.
04.04.2015
Zumbatíminn í dag, laugardaginn 4. apríl fellur niður vegna veikinda kennarans. Salurinn er opinn fyrir þá sem vilja koma og dansa sína dansa
í staðinn. Tækjasalurinn er opinn til kl 16 í dag.
30.03.2015
það verður ekkert rúllað í dag.
Nýtt lokað námskeið byrjar 10. apríl, næsti opni mánudagstími 13. apríl
Hlökkum til að sjá ykkur
Gleðilega páska
Andrea og Guðríður
26.03.2015
Það verður lokað hjá okkur föstdaginn langa og á páskadag. Á skírdag og annan í páskum er opið frá 10 til 13. Engir
Hóptímar verða í boði. Allir tímar eru inni á laugardeginum og opið frá 9 til 16. Hot yoga kl 20 miðvikudaginn fyrir skírdag fellur
niður.
23.03.2015
Body Balance tíminn næsta miðvikudag fellur niður. Bendum á Hot Fit tímann kl. 17:30 í staðinn.
16.03.2015
Dekurnámskeiðið er fyrir konur 50 ára og eldri og yngri konur sem eru með vefjagigt og einhver vandamál. Lúmskir, volgir tímar tvisvar í
viku og einn þrektími á efri hæðinni. Tíminn á föstudögum kl. 16:30 er volgur Hot Fit tími hjá Öbbu. Það
er alveg pláss fyrir fleiri skvísur því námskeiðskonurnar mæta aldrei allar á föstudögum. Þannig að við ætlum
að opna þennan tíma fyrir konur sem vilja hreyfa sig á föstudögum í skemmtileghum félagsskap.
14.03.2015
Það eru 4 opnir Hot Fit tímar í tímatöflunni og allir vel sóttir nema einn, kl. 18:30 á mánudögum. Það verður einn
tími í viðbót, næsta mánudag og hann verður mjög líklega sá síðasti. Við settum þennan tíma inn til að
mæta biðlistanum inná Dekurnámskeiðið og Nýtt útlit og höfðum hann opinn til að fylla uppí. Einnig er spinningtíminn
á fimmtudögum kl. 18:30 fámennur á okkar spinningmælikvarða þar sem oftast eru milli 30 og 40 í tíma. Á fimmtudögum eru
í kringum 10 manns að mæta og við munum taka þennan tíma út í apríl. Síðan er möguleiki á því að
við fækkum Body Balance tímunum niður í einn á viku eftir 1. apríl.
13.03.2015
Frábær árangur náðist á 8 vikum hjá lífsstílnum. Hópurinn er frábær og Abba, Hóffa og Anna njóta
þess í botn að kenna þessum ofurkonum. Fyrir 10% léttingu á 8 vikum eru verðlaunin 6 mánaða þrekkort að verðmæti 49.000
kr. og það voru tvær dömur sem náðu þessu núna Inga Huld Pálsdóttir og Anna Haraldsdóttir. Þær voru jafnar með
hlutfallslega flest kíló farin og fengu því tvo mánuði extra fyrir það og Anna var með flesta sentimetra farna og fékk aðra tvo
mánuði þar. Hafdís Unnsteinsdóttir krækti í mætingaverðlaunin og svo voru svakalega flott utdráttarverðlaun.
Jóhanna Bára Þórisdóttir listakona er í hópnum og hún gaf mynd sem hún málar af kindarössum og Súlur í
baksýn. Abba gaf krúttklút og Bjarg mánaðarkort.
Til hamingju allar með flottar fyrstu 8 vikur. Þær seinni verða bara enn skemmtilegri.
10.03.2015
Hvernig væri að prufa einn vinsælasta hóptíma í heiminum? Body Pump eru lyftingar með stöng og laus lóð í
klukkutíma. Kennarinn fer eftir ákveðnu prógrammi sem breytist á þriggja mánaða fresti. Flott tónlist, öðruvísi
samsetningar, fullt af hugmyndum fyrir þá sem vilja breyta til í lyftingasalnum. Góðar kviðæfingar og teygjur. Anna
Ársælsdóttir kennir þessa tíma hér og er einn reyndasti Body Pump kennari landsins. Tíminn er á þriðjudögum kl. 17:30 og
hentar öllum.