22.04.2006
Æðsti draumur Stínu rættist í gær er hún fékk að fara uppá pallinn og kenna með micrófón. Hún var náttúrulega langflottust og kenndi Síðubitunum ýmis trix á hjólinu til að komast hjá því að taka of mikið á. Aldrei hefur sést eins sexy kennsla á hjóli.
21.04.2006
Þá er komið að matreiðslunámskeiðinu hjá öllum sem eru á Lífsstílsnámskeiðum eða Gravitynámskeiðum. Þau sem voru á síðasta námskeiði meiga líka taka þátt. Námskeiðin verða á sunnudaginn kl 14 og þriðjudag kl 19:30. Ef það verður ekki næg þáttaka á sunnudag verður þriðjudagurinn bara inni.
18.04.2006
Aðsóknin var frábær um páskana og fullt af ferðafólki mætti og tók sinn prufutíma. Metið var líklega á Skírdag, þá komu um 300 manns og voru biðraðir í öll upphitunartækin á tímabili.
18.04.2006
Við mælum eindregið með 4 vikna Gravitynámskeiði ef þú vilt sjá skjótan árangur. Finna fyrir stinnum vöðvum og sjá breytingu á skrokknum. Það er fullt á námskeiðin kl 06:15, 09:30 og 17:15, en 1 sæti laust kl 08:30.
13.04.2006
Helgi stórskáld mætti í gær, dvaldi lengi, samdi vísur og seldi kjöt.
Hér kemur vísan sem var samin:
Hérner gott að hafa kraftinn.
Halda út í tíma fjóra.
Ávallt lokaðann hafa kjaftinn,
nema vatnið þarf að þjóra.
13.04.2006
Íslandsmeistaramótið í línudansi er 13. maí. Abba er búin að semja dans og fyrsta æfing er á föstudaginn langa kl 16:00 hér á Bjargi.
11.04.2006
Nú eru páskarnir á leiðinni og bærinn að fyllast af fólki. Munið að við tökum vel á móti öllum sem vilja prufa að æfa hér og allir fá einn frían prufutíma.
06.04.2006
Næsta Gravitynámskeið byrjar mánudaginn 10. apríl kl 06:15. Það er fullt á það nú þegar. Hin þrjú byrja svo eftir páska, 24. apríl. Þau eru kl 08:30, 09:30 og 17:15. Skráning er í gangi.
06.04.2006
Tryggvi spinningkennari varð pabbi í morgunn. Hann og konan hans eignuðust 16 marka stelpu og óskum við þeim til hamingju með prinsessuna.
06.04.2006
Það er loksins komin stöng og varanleg geymsla fyrir boltana í tækjasalnum. Einnig var allt smádótið hengt upp og komið gott skipulag á allt dótið hans Davíðs.