21.01.2014
Óli setur æfingu dagsins á töfluna 2x í viku, 4 æfingar alls. Oftast er önnur meira þol en hin góðar styrktaræfingar.
Hann er í salnum á þriðjudögum og fimmtudögum oftast frá kl. 6 til kl 16. Alltaf til í að leiðbeina og það fylgir með
kortinu. Skemmtilegar og fjölbreyttar æfingar sem henta öllum.
16.01.2014
Það er yfirfullt á dekurnámskeiðið kl. 17:30 á þriðjudögum og fimmtudögum. Þokkalega fullt á Nýtt útlit en
hægt að bæta nokkrum við og einnig í dekri, dansi og djammi. Þetta er eðalblanda fyrir konur að dansa í sig gleðina, styrkja miðjuna og
allt hitt í heitu þrektímunum, og tengja svo sál og líkama í Body Balance og Hot yoga. Ef heita þrekið fer illa í einhverja er
möguleiki á venjulegum þrektímum kl. 16:30 á miðvikudögum, þar sem við notum Gravitybekkina góðu, hjólin, palla og fleira
skemmtilegt.
16.01.2014
Við bjóðum fólki sem hefur lítinn tíma eða heilsu til að æfa mörgum sinnum í viku þann kost að kaupa sig inní einn
tíma vikulega fram í miðjan maí. 16 vikur kosta 14.000 kr. og viðkomandi getur valið sér tíma, spinning, Hot yoga, heitt þrek eða
eitthvað annað. Mögulegt er að kaupa sig inní tíma 2x í viku fyrir 28.000 kr. Bjargþrekið á laugardagsmorgnum fylgir með en ekki
tækjasalur.
14.01.2014
Núna eru námskeiðin að byrja og mikið að gera í afgreiðslunni og þröngt á bílasæðunum. Þá er
það bara þolinmæðin og kannski að ganga á Bjarg ef þið eigið heima nálægt. Svo er líka frítt í
strætó. Dekurnámskeiðið byrjar í dag og það komu rúmlega 30 í heita tímann í gær, en hann er að hluta til
fyrir Nýtt útlit. Þau eru samt flest að byrja í dag og líka dekur, dans og djamm. Abba vigtar og mælir fyrir tímann sem er 16:30 og
eftir 17:30 tímann. Gott að fá tölurnar á blað og stefna að 10% léttingu á mislöngum tíma.
09.01.2014
Það er fullt á Dekurnámskeiðið hennar Öbbu. Við sjáum til eftir fyrstu vikuna hvort eitthvað losnar fyrir biðlistann. Enn er
pláss fyrir 10 manns á Nýtt útlit stig 2 og dekur, dans og djamm námskeiðið. Við skráum frekar langa biðlista og náum oft að
koma ansi mörgum inn af þeim.
Námskeiðin byrja eftir helgina og eru margar búnar að prufa tímana í þessari viku og klára harðsperrurnar, gott að vera laus við
þær. Við munum vigta og mæla alla sem það vilja og skrá niður til að taka þátt í áskoruninni. Hjá okkur
vinna allir sem ná markmiðunum, ekki bara einn sem fær verðlaun.
09.01.2014
Þetta námskeið er fyrir þær sem vilja dansa Zumbu, koma í Hot yoga, svitna vel í heita þrekinu hjá Öbbu og styrkja miðjuna og detta
svo inní einn og einn Body Balance tíma. Tækjasalurinn fylgir með, 15 vikur á aðeins 37.000 kr. Abba og Arna Benný kenna flesta tímana.
08.01.2014
Við höfum boðið uppá kreppukort síðan 2009. Þau kostuðu 50% minna en venjulegt mánaðarkort og þá þurfti viðkomandi
að mæta í ræktina milli kl. 10 og 16. Við erum enn að selja ódýr kort sem gilda allan daginn í tækjasalinn og kosta bara 6900
kr. Frábær kostur fyrir þá sem vilja prufa okkar góða sal og einnig ef þú ert kannski á förum eitthvert og vilt ekki binda
þig lengi.
08.01.2014
Óli og Tóta skiptast á að kenna þrektímana á morgnana kl. 6:10. Óli verður með tímann í fyrramálið,
frítt fyrir alla sem vilja prufa. Það eru líka þrektímar kl. 8:15, 12:10 og 16:30 sem tilheyra þrekkortinu.
08.01.2014
Body Balance númer 63 verður frumfluttur í dag kl. 17:30. Hóffa og Abba kenna báðar og eru allir velkomnir í tímann. Góðar
sveiflur í Tai Chi, opnun, styrkur og liðleiki tekur síðan völdin og tónlistin stjórnar ferðinni. Slökun á eftir.
06.01.2014
Tilboðið til skólanema 14 ára og eldri stendur enn. Árið á 35.000 kr í tækjasalinn og þrektíminn á laugardögum
fylgir með. 10 tímar í Hot yoga voru með til áramóta en ekki lengur.