03.04.2012
Næsta Body Fit námskeið byrjar 16. apríl. 4 vikur og þú finnur mun. Vinnum vel í djúpu kvið og bakvöðvunum og sterkari
kjarni þýðir betra líf á allan hátt. Heiti salurinn hefur slegið í gegn og hefur fjölgað í þessum tímum
undanfarið. Námskeiðið er 3x í viku kl 16:30 á mánudögum, en 16:15 á miðvikudögum og föstudögum.
27.03.2012
Næsti sunnudagur er Pálmasunnudagur og því ekki von á mörgum í ræktina vegna ferminga og ferðalaga. Við ætlum því
að fella Hot Yoga niður næsta sunnudag. Lokað verður á Skírdag, föstudaginn langa og páskadag. Tækjasalur verður opinn á
annan í páskum frá 10-13. Opið verður eins og vanalega á laugardeginum en allir tímar falla niður og einn stór þrektími
hjá Tryggva kemur í staðinn og verður hann kl 10:00. Miðvikudaginn fyrir páska falla allir tímar niður sem eru eftir hádegi. Höldum
venjulegri dagskrá fyrir hádegi.
26.03.2012
Það hafa verið tveir danstímar í röð á laugardögum, Zumba kl 12 og Body Jam kl 13. Núna ætlum við að sameina þennan
tíma í einn. Eva mun dansa mest Zumbu en skjóta inn sínum uppáhaldsdönsum úr Body Jamminu. Tíminn er opinn fyrir alla, líka
þá sem eiga ekki kort á Bjargi.
26.03.2012
Þrátt fyrir góða veðrið komu tæplega 40 manns í Ólatímann á laugardag og Body Balancetíminn er alltaf vel fullur.
Sunnudagstíminn hjá Tryggva hefur slegið í gegn og hentar öllum. Spinning í 45 mínútur og styrktarhringur í 30 mínútur
á eftir. 30 mínúna spinnintímarnir á mánudögum og miðvikudögum hafa virkað vel og CXWORX core tíminn á eftir í
30 mín. Frábær blanda sem við munum örugglega halda áfram með.
22.03.2012
Anna frumflutti nýtt Combat á miðvikudag. Frábært og öflugt kerfi sem allir þurfa að prufa. Bardagaþema, fullt af góðum
æfingum og mikið þol. Kennt á miðvikudögm kl 17:15.
22.03.2012
Við munum endurskoða tímatöfluna eftir páska og fækka tímum eitthvað. Flestir tímar eru vel sóttir en við viljum helst sjá
vel yfir 10 manns í tímum til að halda þeim inni. Námskeiðum fer líka fækkandi með hækkandi sól. Munum halda áfram
með lífsstil og Gravity eftir páska.
20.03.2012
Við mælum með fyrirlestri Ingu Lóu hér á Bjargi á morgun kl 20:00. Hún segir okkur hvað þarf að varast varðandi aukaefni
í mat. Msg, aspartam, glúten og fleira. 1000kr fyrir korthafa á Bjargi.
12.03.2012
Abba og Anna ætla að frumflytja nýtt CXWORX í hádeginu á morgun. Æðislega öflugt og skemmtilegt kerfi fyrir kjarna líkamans.
Áskoranir um að klára erfiðar æfingar en líka auðveldari möguleikar. Þú finnur mun eftir tvo til 3 tíma. Happdrætti
í lok tímans.
08.03.2012
Búið er að frumflytja nýtt Body Pump og Body Step. Hvetjum alla til að prufa þessa tíma. Pumpið er vinsælasti hóptimi veraldar og
kenndur út um allan heim. Sama má segja um steppið. Það er pallatími með áherslu á styrk og þol. Einföld spor en
fullt af flottum æfingum og áskorunum. Ef þú vilt stynnari rass, sterkan kjarna, flott læri og meira þol þá er Body Step tími fyrir
þig.
05.03.2012
Það eru of fáir að mæta í Hot Yoga á sunnudögum miðað við kostnað og umstang. Við ætlum samt að gefa tímanum
séns og færa hann til um klukkutíma. Tíminn næsta sunnudag verður því kl 10:05 og kennarinn lætur vita í upphafi tímans
hvort hann verður í 60 mínútur eða lengri. Klukkutíma tímarnir virðast vera vinsælastir þó kennurunum þyki 90
mínúturnar bestar. Það þarf ekki að skrá sig í þessa tíma, bara mæta. Allir sem æfa íþróttir
á Akureyri innan IBA geta komið í þennan tíma og borga aðeins 500kr.