01.12.2016
Nú eru námskeiðin hjá okkur að klárast og mjög flottur árangur hjá hópunum okkar :)
Allir sem eru að klára námskeiðin æfa frítt til jóla og því um að gera að nýta tækjasalinn og opnu tímana í desember.
29.11.2016
Síðastliðinn þriðjudag var troðfullur salur þegar tekinn var fyrri hluti 90´s þema 90-94.
Nú er komið að síðari hlutanum 95-99 og verður stuðið engu minna :)
24.11.2016
Vinavika verður á Bjargi frá laugardeginum 26.desember til föstudagsins 2.desember. Allir korthafar mega bjóða með sér vinum í tíma og tækjasal þessa daga.
Við hefjum einnig sölu á jólakorti 28.nóvember en kortið gildir út desember. Tækjasalskortið er á 6.900 krónur og þrekkortið á 9.900
21.11.2016
Það verður 90´s þema í spinning kl 17:30 á þriðjudaginn og mun Tryggvi spila lög frá þessu gullaldartímabili af fullum styrk :)
17.11.2016
Páll Hólm er nýr hóptímakennari hjá okkur. Páll er ÍAK-einkaþjálfari og mikill íþróttamaður.
15.11.2016
Við erum á snappinu - bættu okkur við á bjarg_gym
10.11.2016
Framundan er dásamlegur tími en um leið sá tími sem við
viljum gleyma að huga að heilsunni og látum hana sitja á hakanum. Þá er
tilvalið að nýta sér okkar frábæru einkaþjálfara.
10.11.2016
Það er góð mæting í hóptíma og tækjasal hjá okkur og greinilegt að margir eru að huga vel að heilsunni :)
19.10.2016
Lyftinganámskeiðið Sterk/ur og morgunnámskeiðið Frískar hefst í næstu viku og er skráning hafin.
17.10.2016
Dekur 50+ og Lífstíll hefjast í þessari viku og er skráning í fullum gangi