07.04.2013
Frá 1. maí gilda kreppukortin allan daginn og í allt. Frábært tilboð á 6600kr mánuðurinn. 1. júní má
síðan búast við afgerandi tilboði á kortum.
06.04.2013
Í kringum miðjan maí byrjum við með sumardagskrána. Morguntímar verða kl 6:10, 8:15 og hádegisþrek 3x í viku. Í
miðri viku verða einn til tveir tímar verða í boði seinni partinn. Body Pump, Hot Yoga, Body Balance, spinning, þrektímar, heitir
Þrektímar og Zumba verða örugglega áfram. Ólatíminn verður svo þar til Óli fer í sumarfrí. Barnagæslan
hættir 1. júlí.
06.04.2013
Vikan sem fer í hönd verður prófraun á hvaða tímar fara að falla út. CXWORX á þriðjudögum er hættur en
það verður einn spinningtími í viðbót kl 18:30. Body Step og Body Fit á mánudögum eru líka frekar fámennir en verða
keyrðir eina viku í viðbót. Þrektíminn á fimmtudögum kl 16:30 er hættur. Þeir sem hafa mætt í hann geta farið
í heitan tíma hjá Öbbu eða Gravity hjá Tótu næstu tvær vikurnar.
02.04.2013
Anna er lasinn í dag og því verður Abba með lóðaþrekhring í dag kl 17:30 í Body Pump tímanum. Óli kennir spinning kl
18:30 í 45 mín og CXWORX fellur niður. Líklega er sá tími hættur vegna lélegrar aðsóknar. Combatið fellur niður
á morgun.