29.12.2011
Það komu um 80 manns í áramótatímann og langt síðan við höfum séð svo marga. 9 kennarar sáu um kennsluna í 4
sölum. Margir mættu í skrautlegum búningum en allir með góða skapið meðferðis.
28.12.2011
Eva verður með áramóta zumbapartý í dag kl 16:30. Það verður funheitur tími og við hvetjum alla til að mæta í
dansdressi eða bara einhverju gleðilegu, jólalegu eða áramótalegu.
28.12.2011
Skráning er langt komin á sum námskeið en nóg pláss enn á öðrum.
27.12.2011
Erum byrjuð að undirbúa áramótatíma Bjargs. Núna verður happdrætti í lok tímans fyrir alla sem lifa af 2 klst. Hvetjum
ykkur til að mæta í skrautlegum klæðnaði. kannski bara með jólabindið eða með eitthvað á höfðinu eða taka
þetta alla leið með búningi uppúr og niðrúr.
27.12.2011
Vonandi höfðu allir það gott um jólin og eru tilbúnir að byrja aftur. Það verður stór þrektími hjá Óla kl.
17:30 í dag og Hot Yoga á sama tíma í heita salnum á neðri hæðinni, um þann tíma sér gestakennarinn Guðmundur sem hefur
áður komið til okkar sem gestakennari.
20.12.2011
Bryndís og Guðríður ætla að vera með þrektíma fyrir alla áhugasama kl 11 á þorláksmessu. Gott að hreyfa sig fyrir
skötuátið.
Anna verður líka með Body Pump í hádeginu á fimmtudaginn. Athugið að Zumbatíminn færist fram á fimmtudaginn og verður kl
16:30.
19.12.2011
Það verður einn spinningtími á morgun, fyrri tímunn fellur niður. Body Fit á fimmtudagsmorgninum er líka úti.
19.12.2011
Stelpur! Við erum með jólagjöfina handa honum. 6 vikna námskeið þar sem karlinn fær að æfa 6x í viku, komast í toppform og
léttast ef hann þarf, liðkast og stinnast. Gjafakortin okkar eru besta jólagjöfun.
19.12.2011
Undanfarin ár hafa námsmenn í jólafríi á Akureyri fengið að æfa frítt hjá okkur milli jóla og nýárs.
Við höfum ekki auglýst þetta en gerum það nú. Skoðið dagskrána yfir jólin, fullt af spennandi tímum og oft er nóg
að koma bara í pottinn!
15.12.2011
Allir með, stökkva á vigtina og við skráum töluna og svo aftur eftir áramót. Sesið allt um verðlaunin og fyrirkomulagið hér.