29.06.2014
Við ætlum að setja inn opinn Gravitytíma á fimmtudögum kl. 16:30. Það þarf ekki að skrá sig í hann, bara mæta,
pláss fyrir 12 og við búumst ekki við að það verði troðið til að byrja með. Volgi þrektíminn sem var á þessum
tíma er hættur. Útitíminn á þriðjudögum er líka hættur.
25.06.2014
Nú eru fjögur námskeið að klárast í þessari og næstu viku. Óli ætlar að halda áfram með útitíma
á fimmtudögum kl. 17:15. Abba verður áfram með heitan tíma á þriðjudögum kl 16:30 og Gravity á fimmtudögum kl 16:30 til
að byrja með. Sjáum til hvort mætingin verður næg til að halda áfram. Útitíminn á þriðjudögum fellur
niður og volgi tíminn á fimmtudögum, en Gravity kemur í staðinn. Vonum að við þurfum ekki að skrá í tímann, bara
mæta. Þetta myndi þá byrja í næstu viku. Síðasti volgi tíminn á fimmtudegi er næsta fimmtudag.
21.06.2014
Hvernig væri að prufa Hot yoga? Tímar sem koma á óvart og er fyrir fólk í toppformi sem og byrjandann, allir fara að sínum
mörkum. Tíminn á sunnudögum er kl. 11 og er oftast 60 mínútna langur. Við endum alltaf á slökun í heita salnum og allir fara
út sveittir og sælir.
11.06.2014
Við erum með fjögur námskeið í gangi núna út júnímánuð, sumarnámskeiðið sem er skokk og þrek á
útipallinum, Dekurnámskeið fyrir 50 ára og eldri, FIMM / TVEIR fyrir þá sem ætla að léttast og Gravity/Bolta námskeiðið
byrjaði í dag. Í júlí verða engin námskeið en við byrjum með FIMM /TVEIR námskeið 13. ágúst og líklega
Gravity/Bolta námskeið. Svo koma hin námsikeiðin inn eins og lífsstíll, Dekurnámskeið og Nýtt útlit.
Dansákorun og Hot yoga áskorun í einn mánuð koma svo inn í september.
10.06.2014
Við erum með glæsilegt útisvæði sem hentar eintsklega vel undir útiafmæli eða einhverskonar uppákomur. Heitur pottur, gufubað,
stólar og borð, erum líka með diska og glös ef þarf. Risa timburoallur sem hentar vel fyrir allavega leiki og dans. Hellulagða svæðið er
frábært til að matast og slaka á í sólbaði t.d. Hluti af inniaðstöðu getur fylgt með, WC, eldhúsaðstaða og setustofa
t.d.
Þetta svæði er semsagt í boði í sumar, ekki fyrir kvöldpartý heldur til ca. kl. 21 daglega gegn vægu leigugjaldi.
08.06.2014
Vegna fjölda áskorana og mikillar sölu á þrekkortunum sem gilda í 15 mánuði höfum við ákveðið að framlengja þetta
glæsilega tilboð fram að þjóðhátíðardeginum 17. júní.
08.06.2014
Það eru 3 bekkir lausir á Gravity/Bolta námskeiðið sem byrjar á miðvikudag. Gravity tímarnir verða 2x í viku, á
miðvikudögum og föstudögum. Heiti boltatíminn verður á mánudögum og er sá tími opinn fyrir Þrekkortshafa og aðra sem eru
á námskeiðum.
06.06.2014
Það er lokað hjá okkur á Hvítasunnudag en tækjasalur er opinn á annan í Hvítasunnu frá kl. 10 til 14. Allir tímar
falla niður þessa tvo daga.
03.06.2014
Sumir tímar sem eru illa sóttir detta út eftir þessa viku. Síðasti Hot yoga tíminn kl. 9:15 á miðvikudögum verður á
morgun. Þá verður einn Body Balance tiími til viðbótar kl. 10:30 á laugardögum, en miðvikudagstíminn kl. 17:00 verður afram
í sumar. Spinningtíminn kl. 8:15 á mánudögum er troðfullur en hinn sem er kl. 17:30 er illa sóttur og því í hættu.
Við vonum að rætist úr mætingu í súperkeyrslutímannn á miðvikudögum kl. 17:30.