19.10.2011
Anna, Inga Steinlaug og óvæntur gestur ætla að frumflytja Combat í dag kl 17:15. Þol, styrkur og snerpa fylgir æfingunum sem koma úr boxi, taikwondo og fleiri bardagaíþróttum.
19.10.2011
Næstu grunnnámsekeið í CrossFit og þau síðustu fyrir jól hefjast 3. nóvember. Námskeiðið á morgnana kl 6:10 er fyrir bæði kynin og Birna kennir. Námskeiðið kl 8:30 er fyrir konur og stelpur og Elma og Guðrún kenna. Þriðja námskeiðið er svo 6 vikna mömmu CrossFit
19.10.2011
Síðasti tíminn hjá 6x6x6 námskeiðinu er á morgun kl 16:30. Happdrætti og verðlaun fyrir þær sem hafa náð 6 kg markinu á 6 vikum.
Fyrsti tíminn hjá nýja hópnum er á laugardaginn kl 11:30. Abba getur mælt þær sem geta mætt á morgun og föstudag til að minnka álagið á laugardeginum.
14.10.2011
Yogatíminn sem átti að vera í hádeginu fellur niður í dag. Bryndís og Abba eru báðar á suðurleið. Munum líklega færa þennan tíma yfir á fimmtudaga.
12.10.2011
Við fáum 8 bekki í Hot Yoga í þessari og næstu viku. Krakkarnir koma úr Menntaskólanum og er þetta góð kynning fyrir þau á einum vinsælasta tímanum hjá okkur.
12.10.2011
Við sögðum í auglýsingu í dagskránni fyrir stuttu að við værum með 7 Les Mills kerfi. Gleymdi Body Balance og því erum við sú stöð á Íslandi sem kennir flest Les Mills kerfi eða 8.
12.10.2011
Það er gott að fá sér einkaþjálfara þegar hugmyndaflugið í tækjasalnum er ekkert, framfarir engar og vigtin fer upp.
12.10.2011
Eva, Gerður og Abba eru Body Jam kennarar Bjargs. Þær eru allar að fara á námskeið í nýjum, æðislegum dansstíl næsta laugardag og verða því allar fyrir sunnan. Við fengum gestakennara
10.10.2011
Það er af sem áður var að tímarnir á föstudagseftirmiðdögum voru best sóttu tímarnir. Núna koma fæstir í ræktina á þessum tíma og því lítið sem ekkert að gera í barnagæslunni. Því höfum við lagt hana niður
05.10.2011
Súperspinning á sunnudögum styttist í 45 mínútna spinningtíma og svo verður stöðvahringur á eftir í hálftíma. Tryggvi ætlar að setja