16.03.2015
Dekurnámskeiðið er fyrir konur 50 ára og eldri og yngri konur sem eru með vefjagigt og einhver vandamál. Lúmskir, volgir tímar tvisvar í
viku og einn þrektími á efri hæðinni. Tíminn á föstudögum kl. 16:30 er volgur Hot Fit tími hjá Öbbu. Það
er alveg pláss fyrir fleiri skvísur því námskeiðskonurnar mæta aldrei allar á föstudögum. Þannig að við ætlum
að opna þennan tíma fyrir konur sem vilja hreyfa sig á föstudögum í skemmtileghum félagsskap.
14.03.2015
Það eru 4 opnir Hot Fit tímar í tímatöflunni og allir vel sóttir nema einn, kl. 18:30 á mánudögum. Það verður einn
tími í viðbót, næsta mánudag og hann verður mjög líklega sá síðasti. Við settum þennan tíma inn til að
mæta biðlistanum inná Dekurnámskeiðið og Nýtt útlit og höfðum hann opinn til að fylla uppí. Einnig er spinningtíminn
á fimmtudögum kl. 18:30 fámennur á okkar spinningmælikvarða þar sem oftast eru milli 30 og 40 í tíma. Á fimmtudögum eru
í kringum 10 manns að mæta og við munum taka þennan tíma út í apríl. Síðan er möguleiki á því að
við fækkum Body Balance tímunum niður í einn á viku eftir 1. apríl.
13.03.2015
Frábær árangur náðist á 8 vikum hjá lífsstílnum. Hópurinn er frábær og Abba, Hóffa og Anna njóta
þess í botn að kenna þessum ofurkonum. Fyrir 10% léttingu á 8 vikum eru verðlaunin 6 mánaða þrekkort að verðmæti 49.000
kr. og það voru tvær dömur sem náðu þessu núna Inga Huld Pálsdóttir og Anna Haraldsdóttir. Þær voru jafnar með
hlutfallslega flest kíló farin og fengu því tvo mánuði extra fyrir það og Anna var með flesta sentimetra farna og fékk aðra tvo
mánuði þar. Hafdís Unnsteinsdóttir krækti í mætingaverðlaunin og svo voru svakalega flott utdráttarverðlaun.
Jóhanna Bára Þórisdóttir listakona er í hópnum og hún gaf mynd sem hún málar af kindarössum og Súlur í
baksýn. Abba gaf krúttklút og Bjarg mánaðarkort.
Til hamingju allar með flottar fyrstu 8 vikur. Þær seinni verða bara enn skemmtilegri.
10.03.2015
Hvernig væri að prufa einn vinsælasta hóptíma í heiminum? Body Pump eru lyftingar með stöng og laus lóð í
klukkutíma. Kennarinn fer eftir ákveðnu prógrammi sem breytist á þriggja mánaða fresti. Flott tónlist, öðruvísi
samsetningar, fullt af hugmyndum fyrir þá sem vilja breyta til í lyftingasalnum. Góðar kviðæfingar og teygjur. Anna
Ársælsdóttir kennir þessa tíma hér og er einn reyndasti Body Pump kennari landsins. Tíminn er á þriðjudögum kl. 17:30 og
hentar öllum.
02.03.2015
Fyrstu 8 vikurnar á Lífsstílsnámskeiðinu klkárast 9. mars. Það er keppni og spenna í hópnum. Sumar eru að keppast
við 10% léttingu og aðrar við að massa sentimetrana. Við munum mæla og vigta fram á síðasta dag. Verðlaunaafhending fyrir fyrstu 8
vikurnar fer fram mánudaginn 9. mars að loknum tíma. 6 mánaða þrekkort er í verðlaun fyrir 10% léttingu á 8 vikum, 49.000
króna virði. Námskeiðið er 15 vikur og mun klárast í kringum 4 maí. Getur verið að við lengjum það þannig að
hægt sé að keppa um 8 vikna verðlaunin og klárum þá 11. maí.
02.03.2015
Síðasti hádegisyogatíminn var sl. föstudag. Takk til ykkar sem alltaf komu, en við þurfum helst fleiri en 10 í tíma til að halda
þeim inní töflunni.
25.02.2015
Við erum búin að færa Body Balance tímana niður í kjallara í nýuppgerðan sal sem tekur um 30 manns. Þess vegna viljum við
sjá fleiri mæta í Body Balance tímana. Ef þú fílar Hot Yoga þá er Balancinn eitthvað fyrir þig. Tímarnir eru
á miðvikudögum kl. 17:20 og 10:30 á laugardögum.
19.02.2015
Það er alltaf hægt að koma inní lífsstílsnámskeiðið og Gravity Bolta námskeiðið. Á þessum
námskeiðum er pláss. Nýtt útlit og Dekurnámskeiðið eru frekar full en kannski pláss fyrir eina til tvær í hvorum
hóp.
19.02.2015
Abba er búin að vera að kenna Hot yoga í hádeginu á föstudögum. Það er frekar léleg mæting og flestir velja
þrektímann framyfir Hot yogað. Síðasti tíminn verður því á morgun kl. 12:10. Bendum á alla hina tímana og t.d. eru enn
tveir tímar í boði á fimmtudögum, kl. 6:10 og 17:20. Á sunnudögum er öruggast að vera búin að sækja sér númer
10 mínútum fyrir tímann til að vera öruggur með pláss. Núna er Bryndís yogakennari kominn aftur eftir um tveggja mánaða
fjarveru vegna puttabrots. Hóffa kennir í dag og er að koma tilbaka eftir veikindi.
16.02.2015
Arna Benný er á leiðinni norður þannig að Zumban fellur niður í dag.