18.05.2015
Síðasta þriðjudag var allt á iði hèr á Bjargi. Frítt í tækjasal og tíma og margir notuðu tækifærið
því það var fullt í öllum tímum. Næst verður opið hús á miðvikudag.
12.05.2015
Næsta fimmtudag verður lokað á Bjargi, 14. maí. Hvetjum alla til að taka þátt í 1. maí hlaupi UFA sem verður þennan dag kl.
11. Hlaupið er keppni á milli Grunnskóla, það er leikskólahlaup 400m hrigur á Þórsvellinum, og svo 5 km. hlaup fyrir alla.
11.05.2015
Óli er komin langt með að fylla í 3 hópa sem hann verður með næstu 5 til 6 vikurnar. Tímarnir eru kl. 6:10, 10:15 og 16:30 á
þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum. Það eru komnir 4 í hvern hóp og því pláss fyrir tvo í
viðbót ef einhverjir eru að spekúlera. Einstakt tækifæri hjá frábærum þjálfara.
11.05.2015
Sumarið er komið og við verðum með flotta tímatöflu þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Opnunartíminn breytist
líka. Opið verður til kl. 21 mánudaga til fimmtudaga, til 19 á föstudögum, 9 til 14 á laugardögum og 10 til 13 á sunnudögum.
05.05.2015
Hot Fit tíminn á fimmtudag kl. 8:15 fellur niður. Tóta mætir galvösk í tímann kl. 6:10 og kennir Hot Fit eins og henni einni er
lagið. Þetta eru síðustu heitu morguntímarnir. Í næstu viku verður Gravity kl. 6:10 og Hot fit á miðvikudegi kl. 8:15.
02.05.2015
Það er orðið rólegra eftir kl. 21 á kvöldin og því munum við stytta opnunartímann frá og með 11. maí. Núna
er opið til kl. 23 en í sumar styttist það til kl. 21.
01.05.2015
Við erum að klára námskeið eins og Nýtt útlit, dekurnámskeið, lífsstíl og Gravity bolta í næstu viku. Einhverra hluta
vegna þá dettur aðsóknin niður síðustu tvær vikurnar. Við ætlum því að opna fyrir alla sem eiga kort á Bjargi inn
í þessa tíma í næstu viku.
28.04.2015
1. maí er frídagur verkalýðsins og við höldum hann hátíðlegan. Það er því lokað á Bjargi.
25.04.2015
Vinsælustu tímarnir munu halda sér í allt sumar. Spinning á mánudags og föstudagsmorgnum, súperkeyrsla á miðvikudögum og
Ólatíminn á laugardögum. Hot yoga verður 1x í viku, Hot Fit 2x í viku og Body Pump 2x í viku.
24.04.2015
Nú er rétti tíminn til að skella sér á Gravity námskeið. Gravity er styrktarþjálfun í bekkjunum sem eru í
þreksalnum á efri hæðinni. Öflugt, einfalt og vaxtamótandi. Gravity hentar öllum og byrjendur geta verið með fólki sem er í
góðu formi og karlar og konur geta verið saman. Hver og einn stillir álagið eftir getu. Stefnum á 5 vikna námskeið(hægt að semja um
styttra), kl. 9:30 á þriðjudögum og fimmtudögum og kl. 16:30 á mánudögum og fimmtudögum. Sjálfsagt að flakka á milli
hópa. Innifalið er svo frjáls aðgangur að tækjasal og öllum öðrum tímum í tímatöflunni. Byrjum 11. og 12.
maí.