Þessi var flottastur!
Það er búið að vera stanslaust partý á Bjargi frá fimmtudegi. Bleikur blær yfir öllu
og það var æðislegt að sjá jákvæða hádegiskarla skella sér í bleiku dressin sem voru í boði. Dansinn dunaði
hjá Evu á fimmtudag, tvisvar á föstudag og svo var svakalega gaman hjá henni og Öbbu í dansmaraþoninu í dag, 50 stelpur á öllum
aldri. í Body Balance mættu rúmlega 30 manns og Hóffa leiddi þær í gegnum einstaklega fallegan og öflugan Balance. Pakkað var
í Ólatímanum og lífsstílnum. Nóg að gera í pottinum hjá nuddaranum og gott að geta svalað sér á toppnum
á eftir.