Þá er allt komið á fullt hjá okkur og opna vikan komin í gang. hún er hugsuð fyrir þá sem vilja prófa staðinn og tímana og sjá hvort þetta er eitthvað sem hentar. Tímarnir sem eru í boði eru merktir inná tímatöfluna. Það eru skemmtilegir happdrættisvinningar í hverjum tima og allir sem koma skrifa sig í gestabók við hverja komu og eiga þá möguleiká á að fá eitt af 4 þriggjamánaða kortum sem verða dregin út í lok vikunnar.
Bjarg blaðið kemur svo út á miðvikudag og verður borið út í hvert hús hér á Akureyri.