Hvaða karl er þetta?
Skráning á námskeiðin okkar fer vel af stað. Við erum með námskeið sem ættu að henta öllum. það sem er nýtt
núna er 6x6x6 áskorun fyrir karla. 6 vikna námskeið þar sem æft er 6x í viku og 6 kg fara ef farið er eftir öllu sem lagt er
fyrir. Sonja Sif og Bryndís Arnars munu sjá um að liðka, styrkja, létta og bæta karlana á þessu námskeiði. Vikuleg
fræðsla í netpósti og mikið aðhald fyrir þá sem það vilja. Þeir fá Hot Yoga, Body Pump, spinning,
útitíma og svo alvöru prógramm í tækjasalinn og góða kennslu.