Núna eru lífsstílsnámskeiðin komin í sumarfrí. Aldrei hafa jafnmargir verið á þessum námskeiðum og sl vetur. Þurftum að bæta við einum hóp fyrir áramót. Góður árangur náðist hjá öllum og þá helst í því að komast í gott form, læra á líkamann og að borða rétt. Berglind HauksdóttirNúna eru lífsstílsnámskeiðin komin í sumarfrí. Aldrei hafa jafnmargir verið á þessum námskeiðum og sl vetur. Þurftum að bæta við einum hóp fyrir áramót. Góður árangur náðist hjá öllum og þá helst í því að komast í gott form, læra á líkamann og að borða rétt. Berglind Hauksdóttir krækti sér í 8 mánaða kort með sínum frábæra árangri, en hún léttist um rúm 12% á 8 vikum og tók af sér fullt af sentimetrum. Erna Kristín Kristjánsdóttir fékk 4 mánuði fyrir að ná frábærum árangri á 16 vikum bæði í kílóum og sentimetrum. Fjórir fengu verðlaun fyrir 100% mætingu og 4 Gravitynámskeið fóru út í happdrættisvinningum. Morgunhópurinn neitaði að hætta og eru því eitthvað áfram meðan mætingin helst.