Ánægður hópur, Daði, Tryggvi, Unnsteinn x2, Binni og Anný, Alda, Halla, Tinna og Harpa.
Liðin okkar urðu í 4 sæti í Þrekmeistaranum á laugardag. Það er sagt að það sé leiðinlegasta sætið og þau voru örfáum sekúndum frá þriðja sætinu, bæði liðin. En krakkarnir stóðu sig velLiðin okkar urðu í 4 sæti í Þrekmeistaranum á laugardag. Það er sagt að það sé leiðinlegasta sætið og þau voru örfáum sekúndum frá þriðja sætinu, bæði liðin. En krakkarnir stóðu sig vel og voru langflottust í appelsínuglu bolunum. Unnsteinn fór í einstaklingskeppnina og bætti sig um tvær mínútur. Kristjana Skúla var í sigurliðinu í 39+ og keppti með stelpum úr Vaxtaræktinni. Við stefnum á að vera með fleiri lið næst og líka í "fullorðins" keppninni. Binni ætlar að setja af stað æfingar og tímatöku einu sinni í mánuði og hafa 5-6 greinar inní því. Við munum auglýsa þegar það fer í gang.
myndir