Abba glöð eftir velheppnaða upptöku með Susanne, Jackie Mills, sjúkraþjálfaranum og Philip Mills eiganda fyrirtækisins
Öbbu var boðið til Nýja Sjálands til að kenna á DVD í Body Vive. Hún æfði í viku í höfuðstöðvum Les Mills í Auckland með Susanne Trainor sem er program director í Body Vive og Pete Manuel Öbbu var boðið til Nýja Sjálands til að kenna á DVD í Body Vive. Hún æfði í viku í höfuðstöðvum Les Mills í Auckland með Susanne Trainor sem er program director í Body Vive og Pete Manuel sem er master trainer fyrir Les Mills. Þetta var mikil upplifun fyrir hana að vera innan um alla sem voru að æfa fyrir upptökur á hinum prógrömmunum og kynnast þessu góða fólki. Les Mills kerfin eru kennd í 13000 líkamsræktarstöðvum í 72 löndum og fer því kennsludiskurinn með Öbbu til margra kennara út um allan heim. Þetta var Body Vive nr 17 og mun koma út í lok nóvember. Þá munum við láta diskinn rúlla í sjónvörpunum okkar svo þið getið séð Öbbu í banastuði uppá sviði í stærstu líkamsræktarstöð LesMills í Auskland.