10.10.2015
Það er nóg að gera á Bjargi þessa dagana. Margir eru að notfæra sér að það er frítt í alla tíma og salinn. Það kom t.d. hópur kvenna frá Skagaströnd í Body Balance í morgun. Abba er með happdrættisvinninga í lok hvers tíma og hefur náð að gleðja marga. Blúnduskrautið og klútarnir seljast og allir eru duglegir að setja pening í söfnunarbaukinn.