100 manns í Gamlárshlaupi UFA

Teygta að loknu hlaupi
Teygta að loknu hlaupi
Ótrúlega flott mæting var í Gamlárshlaup UFA þann 31. des. Rúmlega 60 manns hlupu 10 km, um 15 gengu þá leið og rúmlega 30 mættu í skemmtiskokkið. Bjartmar Örnuson var vel fyrstur í mark hjá körlunum og Rannveig Oddsdóttir hjá konum. Bjarg gaf vegleg útdráttarverðlaun: Ótrúlega flott mæting var í Gamlárshlaup UFA þann 31. des.  Rúmlega 60 manns hlupu 10 km, um 15 gengu þá leið og rúmlega 30 mættu í skemmtiskokkið. Bjartmar Örnuson var vel fyrstur í mark hjá körlunum og Rannveig Oddsdóttir hjá konum.  Bjarg gaf vegleg útdráttarverðlaun:  tvö CrossFit námskeið, tvö Gravitynámskeið, tvö mánaðarkort og eitt þriggja mánaðakort.  Einnig 3 geisladiska, höfuðskraut, sápur og áramótagos.  Einnig gáfum við léttar veitingar sem Abba sá um, vefjur með fersku grænmeti, osti og skinku, gulrætur og rófur, kaffi og engiferkökur.  Margir fóru svo í pottinn á eftir og tóku því rólega á síðasta degi ársins.