06.03.2013
Anna frumflutti nýtt Combat í vonda veðrinu í dag, hrikalega skemmtilegt að hennar sögn. Hóffa verður líklega með nýtt Body Step
næsta mánudag. Gaman, allt að gerast og fullt af nýjum æfingum og áskorunum.
06.03.2013
Það er að byrja nýtt námskeið í fyrramálið í Gravity 60 ára og eldri. Tímarnir eru kl 9:30 á fimmtudögum og
10:30 á mánudögum. Nokkur pláss eru laus, einstaklega góðir styrktartímar fyrir fólk á besta aldri. Kennari er Ósk
Jórunn Árnadóttir sjúkraþjálfari.
06.03.2013
Hólmfríður og Aðalbjörg eru Body Balance kennarar Bjargs og munu frumflytja Balance númer 60 á morgun. Þokkalega krefjandi yogastöður og
fallegt flæði milli tónlistar og æfinga. Það er ein sérstakelga erfið áskorun en enginn þarf að geta gert allt sem er lagt upp
með og alltaf gefa þær upp auðveldari leiðir.
05.03.2013
Það er hægt að koma inní 18:30 hópinn í Gravity vefjagigt á mánudögum og miðvikudögum. Hópur fyrir fólk með
vefjagigt og önnur stoðkerfisvandamál. Aukatímar í hverri viku í heita salnum, Hot Yoga annan hvern fimmtudag kl 18:30 og teygjutími annan hvern
föstudag kl 16:30.
05.03.2013
Gravity Extra er námskeið fyrir þau sem eru 30 kg of þung eða meira. Þórunn Erlings, Guðríður og Andrea haf séð um
hópinn og er mikil ánægja með námskeiðið fyrst 8 vikur þessa árs, og sitja þau sem fastast í þessum hóp.
En það er laust fyrir nokkra seinni 8 vikurnar á námskeiðinu og byrja þær 14. mars. Gravity 2x í viku og þol (spinning eða
útiganga) einu sinni í viku. Vigtun, mælingar og fræðsla í netðósti.